Árgangur 1982 frá Ísó
Myndasíða
14.03.2008 12:34:30 / iso1982

10 ÁR !!

Jæja var að fatta það um daginn að það eru víst að koma 10 ár núna í vor síðan við kláruðum Grunnskólann á Ísafirði!! Sælla minninga!! En já ég var bara að spá hvort einhver nennir að taka að sér að skipuleggja smá í kringum þetta! Það væri svo leiðinlegt ef að við höldum okkur ekki við og höldum upp á svona stóra viðburði í lífi okkar, þó svo að þetta þýði að við séum að verða gömul!! Jæja auglýsi hér með eftir einhverjum sem langar að taka þetta að sér, því miður hef ég ekki tíma til þess!! Er að reyna að klára skólann!!

kv Arna Ýr

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.07.2006 22:37:14 / iso1982

Vel heppnuð helgi :)

Sæl öll..

Helgin var bara nokkuð góð og byrjaði á föstudagskvöldinu með myndashowi sem mikið var hlegið yfir. Nokkur myndbönd voru sýnd og þar á meðal partyið hjá Sverri eftir samræmduprófin og Þokki ´98 en það væri snilld ef einhver gæti komið þessum myndböndum á tölvuform!!

Á laugardeginum hittumst við á Holti í sandfjörunni og var bara fámennt en góðmennt og skemmtum við okkur vel þrátt fyrir sólarleysi. Byggður var sandkastali, spilað strandblak, farið á kajak og í boccia, spilaður fótbolti, golf, hafnarbolti og farið í snúsnú. Hópurin kom sér svo í sund á suðureyri og mættu þar Matti á mótorhjóli og svo var mér, Ingu Ósk, Svanlaugu, Helgu Sigríði og Alexíusi gefið far yfir þannig að ef Sandra Dís hefði ekki mætt á bíl aðeins síðar þá hefðum við orðið strandaglópar á suðureyri..hehehe en í staðin þá var nokkuð troðið afturí á leiðinni heim :).

Um kvöldið var svo hittingur í tungudal og held ég að það hafi verið 24 úr árgangnum sem mættu og tel eg það bara nokkuð gott. Inga Ósk og Thelma stóðu fyrir alveg frábærum skemmtiatriðum. Farið var í spilakapphlaup, reipitog milli kynja og svo voru ýmsir manaðir í að gera ýmsa hluti en t.d. lék Freysteinn tré í vindi, Helga lék Sverri skoppara, Brjánn lék Bödda, Böddi lék Beggu kennara taka tryllinginn, Matti lék Össa taka trylling með kókflöskuna sem gerðist víst í 11 ára afmælinu hans, Össi tók riverdance, Atli dansaði og söng "you like to move it move it" og ýmsir tóku bjórtrektina góðu :) Allir fengu svo kórónu með tilvísun í e-ð sem einkenndi þau á grunnskólatímabilinu!!! Mikið var djammað og endaði fólk ýmist á krúsinni eða út í Bolungarvík á balli.

Held að enginn hittingur hafi verið á sunndeginum en það var mikil rigning og meirihlutinn þunnur....

Svo er bara spurning um hverjir ætla taka að sér nefndina fyrir næsta hitting? Var það e-ð ákveðið á laugardagskvöldinu?

Hér er linkur á myndir frá helginni en þær fóru ekki inn alveg í tímaröð þar sem ég skýrði nokkrar heitum til að augljósara væri hvað væri i gangi. Tók líka nokkur video sem ég ætla að reyna koma á netið sem fyrst en þau eru algjör snilld....

http://www.simnet.is/isn/myndir/arg82/index.htm

Takk æðislega fyrir helgina og vonandi verðum við ennþá fleiri eftir 5 ár enda ómissandi hittingur :)

kv. Edda María


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.07.2006 10:28:40 / iso1982

Fjaran í Holti kl 14 í dag :)

Takk fyrir skemmtilegt kvöld í gær elskurnar :)

En nú er það bara fjaran í Holti kl 2 í dag..  Vonum að hann haldist þurr blessaður.  En ég vil að það komi fram að við fengum að fara í fjöruna (sem er lokuð núna) með því skilyrði að við myndum ekkert vera að væflast upp á land því þar er svo mikið af ungum núna.

Hlakka til að sjá ykkur

Knús

Sandra


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.06.2006 16:40:41 / iso1982

Til allra púka af árgangi 1982 frá Ísafirði

 

 

Ísafirði 16. júní 2006

 

 



Sæl verið þið!

 

 



Nú hefur komist mynd á dagskrá endurfundanna sem við ætlum að efna til á Ísafirði helgina 30. júní til 2. júlí, hana má sjá hér: 

 

 



Föstudagur 30. júní:

20:00 Hittingur í Krúsinni -á dagskrá er bjór, gaman-saman, skemmtilegar skólasögur, myndbönd og slide-show!  Bjórtilboð!

 

 



Laugardagur 1. júlí:

14:00 Hittumst í sandfjörunni við Holt í Önundarfirði og leikum okkur í sandinum, fljúgum flugdrekum, stökkvum af bryggjunni (í fötum eða án, fer eftir smekk) eða gerum það sem okkur listir... Líklega verða tveir kayakar á staðnum.  Vonum að veðrið leiki við okkur.  Saltið verður svo skolað af í sundlauginni á Suðureyri.  Fólk kemur sér bara sjálft á milli staða en ef næg þátttaka fæst þá mælir ekkert á móti því að hópast saman í hóferðabíl.

19:00 Tjöldum stóru tjaldi á tjaldsvæðinu inni í Tungudal, grillum saman og eigum skemmtilegt kvöld (spjallað, meiri bjór (fyrir þá sem það vilja), leikir, dans, trúnó.. eins lengi og augun haldast opin). 

 

 



Sunnudagur 2. júlí:

13:00 Bandý-keppni á skólalóðinni.

14:00 Hópfaðmlag á Silfurtorgi.

 

 



Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta svo við getum átt skemmtilega helgi í góðra vina hópi.

 

 



Hlökkum til að sjá ykkur

 

Ísafjarðararmur árgangsins

 

P.s. Til hamingju með afmælið, Linda Dögg og Jóhanna Ósk í gær og Helga Sif í dag :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 18:32:52 / iso1982

15 dagar í hitting

Allt að komast á hreint..  Þetta verður alveg kreisí hittingur, ekkert smá góð stemming í öllum sem ég hef talað við :)

En á morgun verður vonandi sent út bréf með dagskrá og svona..  Úff eins gott að við erum svona tímanlega í þessu ;) hehe

Ást í poka

Sandra Dís

P.s. ef þú mætir ekki áttu svoo eftir að sjá eftir því


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 19:18:38 / iso1982

Upplýsingalistinn.. taka tvö

Sæl veriði elskurnar

Ég tók út nafnalistann, eins og ég sagði í kommentinu hér að neðan, vegna ábendinga um friðhelgi einkalífsins.  Svo ég ætla bara að reyna að auglýsa eftir upplýsingum um ykkur J

Auður Guðjóns

Ásgeir Þór

Berglind Ósk

Brjánn

Bryngerður

Böðvar

Davíð

Djorde (afsakið ef stafsett vitlaust)

Djurdja

Eðvarð

Einar Kári

Freyr

Freysteinn

Georg Rúnar

Haukur Árni

Haukur Eiríks

Heiðar Þór

Hulda Ösp

Kjartan

Kristín Þóra

Óli Sveinbjörn

Óskar

Siggi Natan

Siggi Pétur

Silja Ósk

Svanlaug

Sverrir

Valdís

Valur

Ýr

Össi

 

Vinsamlegast sendið mér netfangið ykkar og símanúmer á andras@hi.is">sandras@hi.is.

Með von um góðar undirtektir, svo við getum komið upplýsingum til ykkar um hittinginn í sumar.

Luv Sandra.




» 7 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 15:49:59 / iso1982

Nafnalisti

Sæl öll sömul.

Senn líður að páskum, sem þýðir að bráðum förum að við að flykkjast vestur á Skíðaviku.. sem þýðir að það fer að vora.. sem þýðir að það er stutt í sumarið.. sem þýðir að það er stutt í '82 REUNION á Ísafirði..  þ.e dagana 30.júní - 2.júlí ;)

Við Linda eyddum vel ríflegri kvöldstund í gær í að setja saman nafnalista árgangsins.  Gerðumst svo kræfar að reyna að koma saman nöfnum, heimilisföngum, símanúmerum, e-mailum og heimasíðum allra, svo það myndi auðvelda okkur að koma sem best og markvissast upplýsingum til ykkar allra.  En það eru auðvitað maðkar í mysunni (mm mysusnafs) í upplýsingaflæði nútímans eins og öðru, og við fundum ekki allt um alla.  Því setti ég (eða meira Þórey) skjalið hér neðst sem link -Nafnalisti og bið ykkur öll um að kíkja á það og senda mér tölvupóst á andras@hi.is">sandras@hi.is með þeim upplýsingum sem vantar um ykkur.

Eggertsgata út í bili.

Sandra Dí.


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 22:20:03 / iso1982

Mannstu

Mér datt í hug að setja hérna upp smá mannstu horn... þá getur fólk sett inn sínar minningar frá Grunnskólaárunum. Einnig datt mér í hug að það gæti verið sniðugt að safna þessu bara öllu saman og lesa svo eitthvað af því upp þegar við hittumst, soldið svona eins og glósurnar á 1. des voru... Ég er alveg til í að halda utan um þetta :) Þannig að gaman væri að fá einhver komment eða þá að hægt væri að senda mér póst svo ég geti bara sett þetta allt saman.

Kveðja Sigga

Munið þið eftir rauðu húfunni hans Ásgeirs sem allar stelpurnar vildu hafa?

...Og munið þið eftir afmælisgjöfinni hennar Hóffýar, þegar hún var þrítug? (ekkert smá flottir eyrnalokkar.... ;))


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 21:47:08 / iso1982

Er ekki spurning að slútta skoðanakönnuninni?

Hvað finnst ykkur þar sem það er kominn mánuður síðan við settum hana í gang.

Grillið er því fyrir valinu eða 48% völdu það og 38% Thai Koon og rúmlega 50 atkvæði bárust.

Ég er að hugsa um að setja upp nýja skoðanakönnun. Skoðana könnun um hvort fólk ætli að mæta eða ekki í sumar.

Ég vona að sem flestir mæti. Gaman að hitta alla, tala við alla, kyssa alla og faðma alla. Það eru svo margir komnir með börn, að vinna, eru í skóla, eru heimavinnandi o.s. frv. Gaman að vita hvað fólk er að gera eða ekki að gera í dag :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.01.2006 09:38:05 / iso1982

VÁÁÁÁ

Ingi kom með svo brjálæðislega hugmynd og svo æðislega skemmtilega að ég ætla að vera leiðó og byrja skoðanakönnuna upp á nýtt og bæta við hugmyndinni þar.

Hugmyndin var sú að við myndum grilla og leigja Orkuhúsið í Engildal.

Ég veit ekki hvort það sé enn hægt að leigja það en alltaf hægt að reyna og lofa að haga okkur vel!!! Sem við auðvitað gerum alltaf :lol:

Ef það er ekki hægt að leigja Orkuhúsið þá er spurning með e-ð annað hús. Það er náttúrlega aðeins meira vesen að grilla en er þá ekki bara spurningin að hver og einn komi með e-ð eða að nokkrir taki að sér að versla inn fyrir liðið?

Hvað finnst ykkur?


» 9 hafa sagt sína skoðun

18.01.2006 10:33:59 / iso1982

Hæ hæ

Jæja ég vona að þið hafið það gott í öllum snjónum hérna á Íslandi!!!

Ég var að tala við Þórey og Söndru Dís um daginn hvort það væri ekki best að reyna að notast við þá aðila sem hafa sambönd á Ísafirði, t.d. með stað til að vera á , matinn og siglinguna.

Húsið sem okkur datt í hug að vera í er annað hvort Sigurðarbúð eða Slysavarnarhúsið (veit ekki hvað það heitir :lol: ), jafnvel bæði föstudag og laugardag. Stutt á föstudaginn, þá bara um kvöldið, en á laugardaginn til að borða og djamma í. Það eru nokkrir í árgangum sem eru í slysavarnarfélaginu og vonandi taka þeir þetta til sín og geta jafnvel spurts fyrir.

Ég og Greipur (ætla að plata hann með mér ) getum talað við Kiddý um að sigla með okkur í Reykjanes.

Maturinn: Spurning hvort við eigum að fá mat frá Thai Koon enda frábær matur og svo má nefna að Helga Sigríður Noregsbúi er náskyld eigandum eða fá mat frá Hótelinu þar sem þar er líka góður matur og veit að sumir voru nú að vinna þar :) Einnig er Fernandos líka í boði.

Ég er búin að setja á stað nýja kostningu hérna hægra megin og vil ég biðja alla um að kjósa þann stað sem þeir vilja borða og svo er hægt að díla við þá.

Kv Inga Ósk


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 12:16:27 / iso1982

Gleðinleg jól

Vil óska öllu fólkinu í fallega árgangnum okkar gleðinleg jól og farsælt komandi ár.

Vonandi hafið það ofsa gott.

Jólakveða Inga Ósk


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.12.2005 23:08:00 / iso1982

Myndir, myndir og aftur myndir!!!

Nú eru prófin loksins búin:lol::lol::lol: (allavega hjá sumum) og við vinkonurnar hittumst í kvöld og fengum okkur að borða saman og skönnuðum fullt fullt af myndum (mest megnis úr albúmum Söndru).

Þetta var mjög skemmtilegt og mikið hlegið…af ýmsum og ýmsu. Allir verða að kíkja á myndasíðuna (linkur hér neðst vinstramegin) og vonum að sem flestir taki sig til og setji inn myndir. Sendið bara mail og lindthor@khi.is (Linda) ef þið viljið fá notendanafnið og lykilorðið á heimasíðunni, þið getið líka sent mér myndir og ég sett þær inn fyrir ykkur.

Gaman væri ef þið mynduð setja inn nýjar myndir af ykkur, mökum (ef einhverjir eru) og öllum börnunum sem eru nú orðin ansi mörg og ennþá fleiri á leiðinni (smá skúbb…óléttar hummm....Silla, Þrúða, Heba…..fleiri???).

 

Jólakveðja Linda, Arna Ýr og Sandra sæta.


» 9 hafa sagt sína skoðun

10.11.2005 20:44:30 / iso1982

Hvað seigir liðið he he

Jæja gott fólk :lol: ég er búin að setja inn linki á síðurnar mínar sem eru undir mínu nafni á þessari síðu þannig að ef þið viljið sjá myndir þá endilega að kíkja en það er eitt skilirði kvitta fyrir sig þegar búið er að skoða síðurnar 8) Ef það er eikkað sem ég þoli ekki er það þegar fólk er að fara inn á síðurnar hjá manni og hvittar ekki fyrir sig :evil:  ég kvitta alltaf ;) en gegt gaman að nöldra aðeins í ykkur hérna :haha:  

                     :klikk: Kær Kveðja Laufey Aníka Sveinbjörnsdóttir :klikk:


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.11.2005 10:10:11 / iso1982

Myndasíða...

Jæja nú er ég búin að gera myndasíðu fyrir okkur, það eina sem vantar núna eru myndir : )

Svo ef þið eigið einhverjar skemmtilegar myndir eða gamlar bekkjamyndir þá megið þið endilega senda mér þær. Einnig getið þið sent mér póst á linda_dogg@hotmail.com og fengið lykilorðið á myndasíðuna og skellt myndunum inn sjálf.

Við getum tekið myndir af gömlu myndunum og sett þær þannig inn eða skannað þær inn.

Ég ætla að athuga hvort ég finni ekki einhverjar bekkjamyndir heima hjá m&p.

Bestu kveðjur Linda Dögg.


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2